- Auglýsing -
Hægri hornmaðurinn Brynjar Búi Davíðsson hefur skrifað undir nýjan samning við Aftureldingu. Tekur samningurinn til næstu þriggja ára. Brynjar kemur úr afreksstarfi Aftureldingar og hefur í vetur spilað með bæði meistaraflokki félagsins og Hvíta riddaranum þar sem hann er með 70 mörk í 21 leik.
„Brynjar er með frábært hugarfar og metnað og mun gera sig gildandi með meistaraflokk félagsins á næstu árum. Brynjar getur spilað sem bæði hægri skytta og hægra horn og er mjög öflugur varnarmaður einnig,“ segir í tilkynningu Mosfellinga í kvöld.
- Auglýsing -


