Obba, eða Þorbjörg Jóhanna Gunnarsdóttir, liðsstjóri kvennalandsliðsins í handknattleik til tveggja áratuga, var heiðruð af HSÍ í gærkvöld áður en viðureign Íslands og Svartfjallalands hófst á Ásvöllum. Obba var kölluð fram á keppnisgólfið. Jón Halldórsson formaður og Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín og Thea Imani Sturludóttir landsliðskonur afhentu Obbu blómvönd. Eftir það risu áhorfendur úr sætum og klöppuðu Obbu verðskuldað lof í lófa.
Obba tilkynnti leikmönnum og þjálfurum kvennalandsliðsins eftir heimsmeistaramótið í desember að hún hafi ákveðið að láta gott heita eftir tveggja áratuga starf sem liðsstjóri kvennalandsliðsins.
Obba hefur fylgt kvennalandsliðinu nærri því hvert fótmál síðan í desember 2005 er hún fór í fyrstu ferðina til Póllands.
Landsleikirnir eru að a.m.k. 200 eftir því sem Obba sagði í viðtalinu við RÚV að loknu heimsmeistaramótinu. Hún hefur fylgt landsliðinu á þrjú heimsmeistaramót og tvö Evrópumót.
Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja
A-landslið kvenna – fréttasíða.




