Janus Daði Smárason og liðsfélagar í Pick Szeged lögðu One Veszprém, 32:28, í annarri viðureign liðanna um ungverska meistaratitilinn í handknattleik karla í kvöld. Liðin mætast í oddaleik í Veszprém á sunnudaginn um ungverska mesitaratitilinn.
One Veszprém vann fyrstu viðureign liðanna á heimavelli sínum, 34:32.
Janus Daði og samherjar voru sterkari í leiknum í dag frá byrjun til enda vel studdir af nærri því 7.100 áhorfendum í Pick Arean í Szeged. Heimamenn voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 15:12, og voru með fimm marka forskot, 32:27, þegar átta mínútur voru til leiksloka.
Janus Daði skoraði þrjú mörk í leiknum í dag. Mario Sostaric skoraði átta mörk fyrir Pick Szeged og Sebastian Frimmel var næstur með sjö mörk.
Bjarki Már Elísson, sem var ekki með One Veszprém í fyrsta leiknum, skoraði þrjú mörk í dag. Aron Pálmarsson skoraði eitt mark og lék aðeins með í tæpar þrjár mínútur.
Lucovic Fabregas var markahæstur hjá One Veszprém með sjö mörk.