Leikur sem fram á að fara í kvöld milli Fram og Selfoss Olísdeild kvenna í handknattleik í Lambhagahöllinni hefur verið seinkað til klukkan 20.30 vegna þess að ekki er fært milli Selfoss og Reykjavíkur. Vonir standa til að vegurinn verði opnaður á næstu mínútum svo að leikurinn geti farið fram.
Lokað er bæði yfir Hellisheiði og um Þrengslin, eftir því sem næst verður komist.
Upphaflega stóð til að hefja leik í Lambhagahöllinni í klukkan 18.30. Síðan var viðureigninni seinkað til klukkan 20 en nú standa vonir til að vegurinn verður opnaður á milli Reykjavíkur og Selfoss þannig að Jónas Elíasson og Ómar Ingi Sverrisson dómarar geti blásið í flautur sínar stundvíslega klukkan 20.30 og þannig gefið leikmönnum Fram og Selfoss merki um að hefja leik.