Ólafur Brim Stefánsson fór afar vel af stað með ítalska A-deildarliðinu Junior Fasano í gær þegar liðið vann Alperia Black Devils, 31:27, á heimavelli í fyrsta leik liðsins á nýju ári. Ólafur Brim gekk til liðs við Junior Fasano í síðasta mánuði.
Ólafur Brim lét til sín taka í sóknarleiknum í fyrsta opinbera kappleik sínum með Junior Fasano og skoraði átta mörk. Hann var næst markahæstur.
Junior Fasano var tveimur mörkum undir að loknum fyrri hálfleik, 15:13.
Sitja í fjórða sæti
Þegar 16 umferðum af 26 er lokið í Seria A þá er Junior Fasano í fjórða sæti með 20 stig. Cassano Magnago er efst með 28 stig. Fjögur efstu liðin taka þátt í úrslitakeppni um meistaratitilinn í vor. Sem stendur er Junior Fasano þremur stigum á undan liðunum sem eru í fimmta og sjötta sæti.



