Ómar Ingi Magnússon leikur að öllum líkindum ekki meira handknattleik það sem eftir er keppnistímabilsins. Hann gekkst í gær undir aðgerð á hæl, eftir því sem félag hans, SC Magdeburg, segir frá í dag. Þar sem fram kemur að óvíst sé með öllu hvenær megi vænta þess að Selfyssingurinn mæti til leiks á ný. Magdeburg hefur í staðinn krækt í svartfellska landsliðsmanninn Vladan Lipovina frá HSG Wetzlar.
Bennet Wiegert, þjálfari Magdeburg, segir meiðsli og fjarveru Ómars Inga vera áfall fyrir liðið og að dreifa verði þunga höggsins á nokkrar herðar innan liðsins enda hafi Ómar Ingi verið lykilmaður liðsins um nokkurt skeið.
Svo virðist sem orðrómur um meiðsli Ómars Inga, sem fékkst ekki staðfestur á meðan HM stóð yfir, hafi átt við rök að styðjast samkvæmt tilkynningu Magdeburg í morgun. Hann var alls ekki upp á sitt besta þegar á mótið leið og tognaði síðan á upphandleggsvöðva (þríhöfða) í leik við Svía í milliriðlakeppninni og tók þar af leiðandi ekki þátt í viðureigninni við Brasilíu áður íslenska landsliðið lauk keppni á HM.
Vegna meiðslanna og aðgerðarinnar á hælnum er einnig víst að Ómar Ingi verður ekki með íslenska landsliðinu í næstu leikjum í undankeppni Evrópumótsins. Tveir leikir fara fram í mars og aðrir tveir í lok apríl.
Lipovina, sem gekk til liðs við Magdeburg í dag, stendur á þrítugasta aldursári. Hann gekk til liðs við Wetzlar á síðasta sumri frá Balingen-Weilstetten en hafði áður gert það gott með V 05/07Hüttenberg og Rhein-Neckar Löwen.
🤕 Omar Ingi Magnusson fällt nach einer Fersen-OP längerfristig aus.
— SC Magdeburg (@SCMagdeburg) February 3, 2023
Werd schnell wieder fit, Omar! 🙏
Zur Meldung: https://t.co/aoXx1bzJVE
_____
| #SCMHUJA | 📸 Franzi Gora | pic.twitter.com/LMKrJRVV0h