- Auglýsing -
Partille cup handknattleiksmótið í Svíþjóð gat loksins farið fram í vikunni en mótið hefur legið niðri undanfarin ár. Partille cup er fjölmennasta handknattleiksmót sem haldið er í Evrópu. Þangað streyma börn og unglingar víðsvegar að úr heiminum og skemmta sér við handknattleik í nærri viku tíma.
Fleiri hundruð Íslendingar taka þátt í mótinu og fjöldi foreldra og forráðamanna slást í för með. Einnig tók U16 ára landslið kvenna þátt í Opna Evrópumótinu sem haldið var samhliða Partille Cup.
Guðmundur Svansson ljósmyndari í Gautaborg hefur fylgst með mótinu síðustu daga. Hann sendi handbolta.is myndir af nokkrum keppnisliðum og þeim sem eru með í för. Hér fyrir neðan er önnur myndasyrpa frá Guðmundi en sú fyrri birtist á fimmtudaginn og má skoða á hlekk hér fyrir neðan.
- Auglýsing -