Landsliðsmaðurinn Orri Freyr Þorkelsson og liðsfélagar hans í Sporting Lissabon unnu öruggan sigur á Águas Santas, 36:29, í annarri umferð úrslitariðils portúgölsku deildarinnar í gærkvöldi. Sporting heldur þar með toppsæti riðilsins og er fimm stigum fyrir ofan Þorstein Leó Gunnarsson og félaga í Porto.
Orri Freyr skoraði þrjú mörk í leiknum í gærkvöldi. Markahæstur allra var hinn magnaði Kiko Costa með 11 mörk.
Fátt virðist ætla að koma í veg fyrir að Sporting vinni sér inn portúgalska meistaratitilinn í ár enda er liðið búið að vinna alla 22 deildarleiki sína og báða leiki sína í úrslitariðlinum á tímabilinu.
Sporting hefur orðið portúgalskur meistari undanfarin tvö tímabil og stefnir nú ótrautt að því að vinna þriðja titil sinn í röð.



