- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Orri Freyr lét til sín taka í Meistaradeildinni

- Auglýsing -

Landsliðsmaðurinn Orri Freyr Þorkelsson og liðsfélagar hans í Sporting Lissabon unnu nauman sigur á Dinamo Búkarest, 30:29, í lokaumferð A-riðils Meistaradeildar Evrópu í Lissabon í kvöld.

Orri Freyr lét til sín taka og skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum í leiknum í kvöld. Bræðurnir Kiko og Martim Costa voru markahæstir með sjö mörk hvor.


Sporting hafnar í sjötta sæti A-riðils og var fyrir nokkru síðan búið að tryggja sér sæti í fyrstu umferð útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar en Dinamo er úr leik og hefur verið um skeið.

Í hinum leik riðilsins vann Nantes góðan sigur á Füchse Berlín, 33:37, í Berlín. Úrslitin breyttu engu um niðurstöðu riðilsins þar sem Füchse var þegar búið að vinna hann og fer beint í átta liða úrslit. Nantes hafnar í fjórða sæti og fer í útsláttarkeppnina.

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -