- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Orri Freyr meistari annað árið í röð – Þorsteinn Leó sá rautt og fékk silfrið

Sporting Lissabon, portúgalskur meistari í handknattleik annað árið í röð. Ljósmynd/heimasíða portúgalska handknattleikssambandsins
- Auglýsing -


Nú fer svo sannarlega ekki á milli mála að Orri Freyr Þorkelsson og liðsfélagar í Sporting Lissabon eru portúgalskir meistarar í handknattleik annað árið í röð. Sporting vann Porto, 39:36, á heimavelli í kvöld í lokaumferð úrslitakeppninnar. Porto-liðið verður að gera sér að góðu silfrið annað árið í röð.


Orri Freyr skoraði fimm mörk í leiknum í dag eins og Salvador Salvador. Francisco Costa var markahæstur með sjö mörk og Martím bróðir hans skoraði sex sinnum.

Þorsteinn Leó Gunnarsson var markahæstur leikmanna Porto með sex mörk. Hann gekk rösklega fram í vörninni og var þrisvar sinnum vikið af leikvelli í tvær mínútur og fékk þar með rautt spjald.

Salvador lyftir meistarabikarnum í leikslok. Ljósmynd/heimasíða portúgalska handknattleikssambandsins

Stiven Tobar markahæstur

Stiven Tobar Valencia og liðsfélagar í Benfica höfnuðu í þriðja sæti. Þeir unnu Maritimo frá Madeira á heimavelli í dag, 38:28. Stiven Tobar skoraði fimm mörk og var markahæstur hjá Benfica ásamt Miguel Naranjo.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -