Orri Freyr Þorkelsson og liðsfélagar Sporting Lissabon eru komnir í átta liða úrslit í Meistaradeild Evrópu í handknattleik þrátt fyrir eins marks tap fyrir Wisla Plock í síðari viðureign liðanna í Plock í Póllandi í kvöld, 28:27. Sporting vann heimaleikinn fyrir viku með fjögurra marka mun, 33:29.
Sporting mætir danska meistaraliðnu Aalborg Håndbold í tvígang í átta liða úrslitum sitt hvorum megin við næstu mánaðamót.
Orri Freyr skoraði eitt mark að þessu sinni. Francisco Costa var markahæstur með átta mörk og Martím bróðir hans var næstur með sjö mörk. Salvador Salvador skoraði fimm sinnum.
Sergei Mark Kosorotov skoraði sjö mörk fyrir Wisla Plock og Melvyn Richardsson skoraði fjörum sinnum.
Í kvöld mætast PSG og One Veszprém í síðasta leik útsláttarkeppninnar. Veszprém vann fyrri viðureignina með átta marka mun og hefur öll tromp á hendi fyrir viðureignir í París.


