Afturelding vann Fjölni í sínum fyrsta æfingaleik fyrir komandi keppnistímabil í Grill 66-deild kvenna. Leikið var að Varmá. Lokatölur, 27:21, fyrir Aftureldingarliðið.
„Gaman að sjá róteringuna á liðinu og nýju leikmennina í rauðu treyjunni. Stelpurnar taka þátt á Ragnarsmótinu á Selfossi sem hefst í næstu viku,“ segir m.a. í tilkynningu Aftureldingar. Nokkrar breytingar hafa átt sér stað á leikmannahópum beggja liða í sumar.
Engar upplýsingar eru að finna um markaskorara.
Eins og handbolti.is sagði frá síðdegis bendir margt til þess að Andrés Gunnlaugsson verði í þjálfarateymi Aftureldingar og leysi af Jón Brynjar Björnsson sem flytur næstu daga til Svíþjóðar.
Konur – helstu félagaskipti 2025
Grill 66-deildir – fréttasíða.