- Auglýsing -

Örvhent norsk skytta gengur til liðs við KA

Norðmaðurinn Morten Boe Linder, nýr liðsmaður KA. Ljósmynd/KA
- Auglýsing -


Handknattleiksdeild KA barst í dag góður liðsstyrkur fyrir komandi vetur þegar Norðmaðurinn Morten Boe Linder skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. Hann kemur í Brekkuna frá norska úrvalsdeildarliðinu Fjellhammer.


Linder, sem verður 28 ára gamall síðar í mánuðinum, er örvhentur og getur bæði leikið sem vinstri skytta og í vinstra horninu

Linder lék einnig með Halden, einnig í efstudeild í Noregi áður hann gekk til liðs við Fjellhammer fyrir tveimur árum.

Karlar – helstu félagaskipti 2025


Forráðamenn KA telja Linder verða búhnykk fyrir lið félagsins:

„Það er ljóst að koma Mortens mun styrkja vel við okkar lið sem verður að mestu byggt upp af ungum KA strákum og er það von okkar að Morten muni aðstoða okkur í þróun þeirra auk þess að taka mikla ábyrgð í spili liðsins. Við erum afar spennt fyrir komu hans norður og væntum mikils af þessum öfluga kappa,“ segir í tilkynningu KA.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -