- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Örvhent norsk skytta bætist í hópinn á Selfossi

Mia Kristin Syverud leikur með Selfossi næstu tvö ár. Ljósmynd/Aðsend - Selfoss
- Auglýsing -


Norska handknattleikskonan Mia Kristin Syverud hefur samið við handknattleiksdeild Selfoss til næstu tveggja ára.

Syverud er 26 ára hægri skytta sem kemur frá Aker Topphåndball þar sem hún lék í norsku B-deildinni. Árin þar á undan lék hún með Aker og Sola í norsku úrvalsdeildinni. Einnig hefur Syverud reynslu úr Evrópudeildinni.


„Við bindum miklar vonir við Mia Kristin Syverud, það verður spennandi að sjá hana hjálpa meistaraflokki kvenna að fylgja eftir sínum besta árangri með reynslu sinni,“ segir í fréttatilkynningu handknattleiksdeildar Selfoss í dag.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -