- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

„Ótrúlega gaman“ í eftirminnilegum fyrsta keppnisleik

- Auglýsing -

„Líðanin er ótrúlega góð. Þetta var ógeðslega gaman og frábær leikur,“ sagði Sara Dögg Hjaltadóttir í samtali við handbolta.is eftir glæsilegan eins marks sigur Íslands á Svartfjallalandi í undankeppni EM 2026 á Ásvöllum í kvöld. Sara Dögg lék sinn fjórða A-landsleik og sinn fyrsta keppnisleik.

„Mér fannst þetta ótrúlega gaman. Það var mjög skemmtilegt að fá að koma inn og prófa þetta. Þetta var geggjað,“ sagði hún.

Stórkostlegur sigur á Svartfellingum


Sara Dögg hafði síðast leikið A-landsleiki árið 2021 og þurfti því að læra margt á skömmum tíma hjá liði sem hefur farið í gegnum mikla endurnýjun. Vel gekk hjá henni að koma sér inn í hlutina hjá liðinu á þessum stutta tíma.

„Þetta gekk bara ágætlega. Ég lærði á öll kerfin og þetta gekk bara vel, sérstaklega miðað við hvað þetta var stuttur tími. Mér fannst þetta ganga vel og stelpurnar og allir aðrir eru búin að hjálpa mér mikið,“ sagði Sara Dögg.

Varnarleikurinn skilaði okkur miklu

Ísland fékk sín fyrstu stig í 4. riðli undankeppninnar, sem gætu reynst afskaplega mikilvæg í baráttunni um að tryggja sér sæti á EM 2026 síðar á árinu.

„Þessi sigur skilar mjög miklu. Það er frábært að fá þessi stig í undankeppninni og þetta er ótrúlega mikilvægur sigur,“ sagði hún.


Hver var lykillinn að sigrinum í kvöld?

„Ég held að það hafi algjörlega verið varnarleikurinn og líka sóknarleikurinn. Mér fannst boltinn fá að fljóta mikið og við vorum að gera það sem við vorum búin að plana að gera. Mér fannst við mjög góðar í vörn, ég held að varnarleikurinn hafi skilað okkur mjög miklu,“ sagði Sara Dögg Hjaltadóttir í samtali við handbolta.is.

Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja

A-landslið kvenna – fréttasíða.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -