- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Óvænt félagaskipti hjá Gunnari Steini

- Auglýsing -

Gunnar Steinn Jónsson hefur ansi óvænt fengið félagaskipti til sænska félagsins Hammarby, sem leikur í úrvalsdeildinni þar í landi. Skiptin eru ekki síst óvænt vegna þess að skórnir hjá Gunnari Steini eru á hillunni.

Handkastið greinir frá því að hann hafi flust búferlum með fjölskyldu sinni til Stokkhólms í sumar og hafi síðan komið inn í þjálfarateymið hjá Hammarby.


Gunnar Steinn, sem er 38 ára, var spilandi þjálfari karlaliðs Fjölnis í Olísdeildinni á síðasta tímabili en lagði skóna á hilluna að því loknu. Þrátt fyrir skiptin reiknar hann með því að skórnir haldist á hillunni.

„Miðjumaðurinn hér sleit hásin og þeir voru ekki að ná neinum inn í staðinn. Ég átti því að vera „backup“ af því hópurinn er þunnskipaður, en þeir fengu síðan inn einn leikmann á síðustu stundu þannig að skórnir haldast á hillunni,“ sagði Gunnar Steinn við Handkastið.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -