- Auglýsing -
Fremur óvænt þjálfaraskipti verða hjá þýska handknattleiksliðinu Borussia Dortmund eftir leiktíðina. Kay Rothenpieler tekur við þjálfun liðsins sem er í efsta sæti þýsku 1. deildarinnar og er auk þess komið í undanúrslit bikarkeppninnar.
Rothenpieler leysir af hólmi Henk Groener sem þjálfað hefur Dortmund-liðið síðan í nóvember 2022. Hann tók við liðinu í erfiðri stöðu m.a. vegna ásakana leikmanna í garð fyrri þjálfara um óviðeigandi hegðun.
Óvíst er hvað Groener tekur sér fyrir hendur en hann er m.a. fyrrverandi landsliðsþjálfari Þýskalands og Hollands í handknattleik kvenna.
- Auglýsing -



