- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Óvissa með Katrínu Tinnu og Hafdísi

- Auglýsing -

Óvissa ríkir um hvort Katrín Tinna Jensdóttir og Hafdís Renötudóttir geti tekið þátt í næsta leik íslenska landsliðsins gegn Svartfjallalandi í Podgorica á sunnudag. Báðar fengu þær höfuðhögg í fræknum 28:27 sigri á Svartfellingum í undankeppni EM 2026 á Ásvöllum í kvöld.

Katrín Tinna fékk högg á gagnaugað eftir tæplega tíu mínútna leik og kom ekkert frekar við sögu í leiknum.

Töluvert hátt uppi og stoltur af stelpunum


„Ég sé eiginlega ekki nákvæmlega hvað gerist. Hún fær slæmt höfuðhögg, á gagnaugað, og við þurfum að taka stöðuna á henni og sjá hvað verður,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari er hann var eftir leikinn spurður út í stöðuna á Katrínu Tinnu.

Bara búinn að vera hjá ykkur fjölmiðlamönnum

Hafdís fékk þá skot í höfuðið seint í leiknum, þurfti sömuleiðis að fara af velli vegna verkja og spilaði ekkert síðustu tæpar átta mínúturnar.

„Hún þurfti að koma út af og við verðum að sjá hvað kvöldið gerir fyrir okkur. Við verðum að meta það,“ sagði Arnar.


Aðspurður sagði hann ekki búið að taka neina ákvörðun varðandi það hvort Katrín Tinna og/eða Hafdís geti tekið þátt í síðari leiknum gegn Svartfjallalandi ytra.

„Nei, ég er bara búinn að vera hjá ykkur fjölmiðlamönnunum þannig að ég veit ekki meira,“ sagði Arnar hreinskilinn.

Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja

A-landslið kvenna – fréttasíða.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -