Þorsteinn Gauti Hjálmarsson, leikmaður Fram og finnska landsliðsins, er að glíma við meiðsli á ökkla sem hafa haldið honum frá keppnisvellinum í síðustu tveimur leikjum Fram í Olísdeildinni.
Handkastið hefur eftir Einari Jónssyni þjálfara Fram að Þorsteinn Gauti hafi meiðst í leik liðsins gegn KA fyrir rúmum tveimur vikum og hafi af þeim sökum ekkert getað æft með liðinu síðan.
Þorsteinn Gauti til Finnlands í næsta mánuði
Þar með er þátttaka hans með finnska landsliðinu í tveimur leikjum gegn Svartfjallalandi í undankeppni HM 2027 í næsta mánuði í nokkurri óvissu.
Þorsteinn Gauti var valinn í finnska landsliðshópinn fyrir helgi en það er honum eflaust til heilla að leikirnir tveir fara ekki fram fyrr en 19. og 22. mars.
Því er ágætis tími til stefnu fyrir Þorstein Gauta að jafna sig í tæka tíð fyrir komandi átök með Fram og landsleikina tvo með Finnlandi.




