- Auglýsing -

Pascual tekur við Egyptum af Pastor

Xavier Pascual ný landsliðsþjálfari Egypta. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -


Spánverjinn Xavier Pascual hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Egyptalands í handknattleik karla. Hann tekur við af landa sínum Juan Carlos Pastor sem lét af störfum hjá Afríkumeisturunum fljótlega eftir heimsmeistaramótið í janúar. Orðrómur hefur verið uppi um skeið að Pascual tæki við og nú hefur egypska handknattleikssambandið staðfest komu Pascual. Hann verður áfram þjálfun ungverska meistaraliðsins One Veszprém.


Pascual er einn sigursælasti félagsliðaþjálfari síðari tíma. Hann stýrði Barcelona í 12 ár, frá 2009 til 2021. Þá sagði hann upp vegna sparnaðar og niðurskurðar og hóf að þjálfa Dinamo Búkarest. Frá Búkarest hélt Pascual til One Veszprém fyrir ári. Hann átti að koma liðinu í úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu í vor en tókst ekki þrátt fyrir að vera með öflugt lið. Gísli Þorgeir Kristjánsson sá til þess þegar hann skoraði sigurmark SC Magdeburg skömmu fyrir leikslok í Ungverjalandi í síðari viðureign liðanna í átta liða úrslitum, 28:27. Magdeburg vann samanlagt með eins marks mun og stóð síðan uppi sem sigurvegari í Meistaradeildinni.

Samhliða þjálfun sinni hjá Dinamo Búkarest, frá 2021 til 2024, var Pascual einnig þjálfari rúmenska karlandsliðsins.

Egyptar höfnuðu í fimmta sæti á HM í Egyptalandi í janúar eftir naumt tap fyrir Frakklandi í átta liða úrslitum. Ísland lagði Egypta á sannfærandi hátt í milliriðlakeppni mótsins, 27:24.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -