Patrekur Jóhannesson fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik og landsliðsþjálfari Austurríkis og þjálfari Stjörnunnar til margra ára hefur verið ráðinn í stöðu svæðisfulltrúa íþróttahéraðanna á höfuðborgarsvæðinu og mun þar starfa með Hansínu Þóru Gunnarsdóttur, eftir því sem fram kemur í tilkynningu Ungmennafélags Íslands.
Patrekur tekur við starfinu 1. ágúst og mun þá væntanlega láta af störfum sem íþrótta- og rekstrarstjóri Stjörnunnar í Garðabæ sem hann hefur sinnt samhliða þjálfun undanfarin ár.
Patrekur er íþróttafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík.
Svæðisstöðvar
Starfsfólk svæðisstöðva íþróttahéraðanna eru sextán talsins um allt land og í öllum landshlutum. Hver svæðisstöð styður við íþróttahéruð á sínu svæði og hjálpar þeim að innleiða stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum.
Starfsemi svæðisstöðvanna hófst fyrir um ári.
Ein af áherslum svæðisstöðvanna er að auka þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu íþróttastarfi á Íslandi, sérstaklega börn með fatlanir, frá tekjulægri heimilum og þau sem hafa fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.