Aron Daði Stefánsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út tímabilið vorið 2027. Aron Daði er efnilegur leikmaður sem hefur verið að brjóta sér leið inn í meistaraflokkslið KA undanfarin ár.
Aron Daði, sem fæddist árið 2007, leikur iðulega sem leikstjórnandi en hann hefur afar gott auga fyrir spili auk þess sem hann er góður skotmaður, segir í tilkynningu frá KA.
„Við erum einstaklega ánægðir að Aron hafi skrifað undir framlengingu á samning sínum við KA. Hann er flinkur leikmaður sem á eftir að verða enn betri, alvöru KA-maður. Það er unnið gott starf í yngriflokkunum hjá okkur og hlökkum við til að gefa honum tækifæri á gólfinu í vetur til að springa út í gula búningnum,“ er haft eftir Andra Snæ Stefánssyni þjálfara KA í áðurnefndri tilkynningu.