- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Pick Szeged svarar yfirlýsingu Gottfridsson

- Auglýsing -

Ungverska félagið Pick Szeged hefur gefið út yfirlýsingu þar sem brugðist er við yfirlýsingu sænska landsliðsmannsins Jim Gottfridsson. Samningi Gottfridssons var sagt upp fyrirvaralaust og hyggst hann leita réttar síns.

Svíinn reyndi sagði í yfirlýsingu sinni að Szeged hafi með uppsögninni brotið gegn skrifuðum og óskrifuðum reglum handboltans.

Gottfridsson var rekinn frá Pick Szeged – ætlar að leita réttar síns


„Við uppsögn á samningi Jim Gottfridsson fór félagið að lögum og stóð að uppsögninni í samræmi við gildandi lög og reglur.

Við höfum ekki hug á því að veita frekari upplýsingar; héðan í frá mun félagið einbeita sér að faglegu starfi sínu og farsælli frammistöðu er liðið undirbýr sig fyrir mikilvæga leiki á næstunni,“ sagði í stuttaralegri yfirlýsingu Szeged.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -