- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

„Pirrar mig óendanlega þegar ég sé þannig fólk“

- Auglýsing -

Renars Uscins, einn af lykilmönnum Alfreðs Gíslasonar hjá þýska karlalandsliðinu, hefur tjáð sig um hvað honum þykir um samfélagsmiðla og þá auknu pressu sem þeim geta fylgt.

Uscins er 23 ára gamall en hefur þrátt fyrir ungan aldur verið í stóru hlutverki hjá Þýskalandi undanfarin þrjú ár þar sem ekki eru um auðugan garð að gresja í hans stöðu, hægri skyttu, í landsliðinu.


Á þessum árum hefur frægðarsól Uscins risið mjög samhliða aukinni ábyrgð og fylgir sviðsljósinu ýmis konar gagnrýni úr hinum ýmsu áttum.

Fær fleiri smelli eða skorar fleiri mörk

„Á þessum tímum sem við lifum á með Instagram og TikTok og öllu því drasli heldur fólk að það sé betra en allir aðrir því það fær fleiri smelli eða skorar fleiri mörk. Það pirrar mig óendanlega þegar ég sé þannig fólk.

Því ég hef kannski fetað þessa slóð sjálfur en segi svo við sjálfan mig: „Ég þarf að leggja gríðarlega hart að mér til þess að áorka öllu því sem ég vil. Ég vil halda mér á jörðinni,“ segir hann í nýrri heimildarmynd sem ber heitið Ástríðufullur allt til enda, (þ. Mit Leidenschaft bis ans Limit).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -