- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Pólverjinn hefur kvatt KA og haldið heim

Línumaðurinn Kamil Pedryc hefur samið við KA. Mynd/KA
- Auglýsing -

Pólverjinn Kamil Pedryc sem kom til KA fyrir keppnistímabilið hefur yfirgefið Akureyrarliðið. Á félagaskiptasíðu HSÍ kemur fram að Pedryc hafi fengið félagaskipti til heimalandsins. Samkvæmt upplýsingum frá lesanda tekur Pedryc upp þráðinn á ný með Zagłębie Lubin.


Pedryc tók þátt í 12 leikjum með KA í Olísdeildinni og skoraði í þeim 13 mörk. Hann kom til KA frá Zagłębie Lubin og átti að styrkja sóknarleikinn en virðist ekki hafa staðið undir væntingum.

Keppni hefst í Olísdeild karla á nýjan leik á þriðjudaginn. KA-menn fá Valsmenn í heimsókn í KA-heimilið þá um kvöldið.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -