- Auglýsing -
Portúgal tryggði sér sigur í B-riðli Evrópumóts karla með því að leggja heimsmeistara Danmerkur að velli, 31:29, í lokaumferð riðilsins í Jyske Bank Boxen í Herning í Danmörku í kvöld.
Portúgal vann því riðilinn með fimm stigum og tekur með sér tvö stig í milliriðil. Danmörk hafnar í öðru sæti og fer í milliriðil án stiga.
Bræðurnir Francisco og Martim Costa voru markahæstir hjá Portúgal með níu mörk hvor.
Mathias Gidsel skoraði átta mörk fyrir Danmörku og Emil Nielsen varði 11 skot í markinu.
- Auglýsing -



