- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Pytlick-lausir liðsmenn Flensburg lögðu Minden

- Auglýsing -

SG Flensburg-Handewitt tyllti sér í annað sæti þýsku 1. deildarinnar, að minnsta kosti tímabundið, með því að leggja GWD Minden nokkuð þægilega að velli, 35:31, á heimavelli í kvöld.

Flensburg er með 41 stig í öðru sæti, fimm stigum á eftir toppliði SC Magdeburg og einu fyrir ofan Füchse Berlín. Magdeburg og Füchse mætast í toppslag á morgun.


Flensburg var án tveggja danskra lykilmanna sinna, Simon Pytlick og Niclas Kirkeløkke, en það kom ekki að sök. Þýskir miðlar segja Pytlick glíma við smávægileg meiðsli á kviði og að hann hafi því fengið hvíld í kvöld.

Pytlick hefur átt í opinberum útistöðum við forvígismenn Flensburg og vill fara til Füchse strax í sumar í stað sumarsins 2027 eins og áætlað er.

Kirkeløkke átti að spila leikinn í kvöld, var skráður á skýrslu en spilaði ekkert vegna þess að hann fann fyrir krankleika stuttu áður en leikurinn hófst.

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -