Ráðning FH á Aroni Pálmarssyni sem aðstoðarþjálfara karlaliðsins hefur vakið töluverða athygli hjá erlendum miðlum. Aron átti frábæran feril sem leikmaður áður en skórnir fóru á hilluna að loknu síðasta tímabili og vekur það sem hann tekur sér fyrir hendur því athygli út fyrir landsteinana.
Vinsælir handboltamiðlar á við Handball World, Handball Planet og Hbold.dk eru á meðal þeirra sem hafa fjallað um ráðninguna.
Hugsaði mig um í tvo daga – sló síðan til
Íslensk goðsögn og einn besti handboltamaður síðastliðins áratugs
Handball World fjallar um að Aron hafi í raun útilokað að leggja þjálfun fyrir sig en að nú hefði hann ákveðið að taka að sér sitt fyrsta þjálfarastarf hjá uppeldisfélagi sínu.
Handball Planet segir frá ráðningunni og skrifar meðal annars um Aron: „Einn besti handboltamaður síðastliðins áratugs hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari hjá FH.“
Fyrirsögn Hbold.dk er þá á þessa leið: „Íslensk goðsögn hefur þjálfaraferilinn.“ Ráðningin rataði auk þess í bosníska miðla en Svijet Rukometa segir frá því að Aron hafi verið ráðinn aðstoðarþjálfari og að degi síðar hafi FH hafi unnið sinn fyrsta leik eftir ráðninguna.




