Morgan Goði Garner, markvörður ÍBV, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt sem gildir til sumarsins 2028.
Morgan Goði, sem fagnar 18 ára afmæli sínu næstkomandi þriðjudag, hefur verið að fá sífellt stærra hlutverk hjá meistaraflokki ÍBV og átti til að mynda frábæran leik í 32:29 sigri á Aftureldingu í Olísdeildinni í gærkvöldi.
ÍBV upp fyrir Aftureldingu með sigri í Vestmannaeyjum
Þar kom hann inn á fyrir Petar Jokanovic og varði 14 skot. Var Morgan Goði með 44 hlutfallsmarkvörslu og sá til þess að áhlaup Aftureldingar seint í leiknum skilaði sér ekki í stigi eða stigum.
Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Matt Garner frá Englandi, sem lék um langt árabil með ÍBV, er faðir Morgans Goða.
Yngri systir hans og dóttir Matts, Sienna Björt, er þá efnileg knattspyrnukona en hún á einn leik fyrir ÍBV í 1. deild þrátt fyrir að vera aðeins 14 ára gömul.


