Ekki er nema mánuður síðan forráðamenn Vardar Skopje skrifuðu undir nýjan samning við argentínska þjálfarann Guillermo Milano og allt virtist leika í lyndi. Nú hefur Milano verið rekinn úr starfi og Ivan Cupic ráðinn í hans stað. Óhætt er að segja að skjótt hafi skipast veður í lofti hjá Milano sem ráðinn var til Vardar í byrjun nóvember, rétt áður en liðið kom til Íslands til viðureignar við Val í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.
Vardar vann Eurofarm Pelister í úrslitum bikarkeppninnar í Norður Makedóníu fyrir mánuði. Milano þjálfari var hafinn til skýjanna eftir sigurinn og honum boðinn nýr samningur í sigurvímunni.
Fáeinum vikum síðar var sigurvíman farin út í veður og vind og runnar tvær grímur á stjórnendur Vardar þegar liðið tapaði fyrir Eurofarm Pelister í úrslitum um meistaratitilinn. Blekið var vart þornað á samningnum þegar Milano var gert að axla sín skinn hjá Vardar og sagt að gleyma samningnum. Hann vissi vart hvaðan á hann stóð veðrið.
Þekkir vel til
Eftirmann Milano þekkja vafalaust margir. Ivan Cupic einn þekktasti handknattleiksmaður Króatíu undanfarin 15 ár. Hann lagði skóna á hilluna fyrir ári og tók við þjálfun hjá uppeldisfélagi sínu Medkovic í upphafi þessa árs og gekk bærilega. Hann var sóttur af forráðamönnum Vardar Skopje sem sumir hverjir þekkja kappann vel. Cupic lék með Vardar frá 2016 til 2021 og var þar með í sigurliði félagsins í Meistaradeildinni 2017 og 2019.
Cupic þekkir vel hverfulan heim þjálfarans því hann var í nokkra mánuði í haust aðstoðarþjálfari RK Zagreb en varð að taka hatt sinn og staf þegar aðalþjálfari liðsins, einn af mörgum undanfarinn áratug, var gert að taka pokann sinn.