Reynir Þór Stefánsson handknattleiksmaður Fram verður kynntur sem nýr leikmaður þýska liðsins MT Melsungen á allra næstu dögum. Þetta hefur handbolti.is samkvæmt heimildum. Allir hnútar hafa verið bundnir og aðeins er þess beðið að félagið tilkynni formlega um komu Reynis Þórs til félagsins.
MT Melsungen situr í þriðja sæti þýsku 1. deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir óleiknar, tveimur stigum á eftir Füchse Berlin sem er í efsta sæti. Melsungen hefur leikið til úrslita í þýsku bikarkeppninni undanfarin tvö ár og var í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í vor.
Tveir eru þegar hjá liðinu
Fyrir eru í herbúðum Melsungen íslensku landsliðsmennirnir Arnar Freyr Arnarsson og Elvar Örn Jónsson. Sá síðarnefndi fer til Magdeburg í sumar eftir fjögurra ára veru hjá Melsungen.
Íslands- og bikarmeistari
Reynir Þór varð Íslandsmeistari með Fram í síðustu viku og bikarmeistari fyrr á leiktímabilinu. Hann var valinn mikilvægasti leikmaður úrslitakeppninnar sem lauk með fyrstu sigri Fram á Íslandsmóti karla í 12 ár þar sem Reynir Þór var helsta tromp Fram-liðsins. Hann lék sinn fyrsta A-landsleik í Laugardalshöll í síðasta mánuði gegn Georgíu.
Fjórði Íslendingurinn
Reynir Þór verður fjórði íslenski handknattleiksmaðurinn til þess að leika með Melsungen. Auk Arnars og Elvars lék Alexander Petersson með liðinu 2021 til 2022. Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfaði lið MT Melsungen frá því snemma árs 2021 fram á haustmánuði 2022.
MT Melsungen er með bækistöðvar í samnefndum bæ um 170 km norðan við Frankfurt og álíka langt í austur frá Köln. Liðið leikur heimaleiki sína í Rothenbach-Halle í Kassel sem er skammt norðan Melsungen.