Reynir Þór Stefánsson Íslands- og bikarmeistari með Fram rakaði til sín verðlaunum á uppskeruhófi HSÍ sem haldið var síðdegis í dag. Reynir Þór, sem kveður íslenska handknattleik í sumar og flytur til Melsungen í Þýskalandi, var valinn besti leikmaður Olísdeildar karla. Einnig hreppti hann hnossið í kosningu á sóknarmanni tímabilsins.
Þriðju verðlaunin sem komu í hlut Reynis Þór var Valdimars-bikarinn sem árlega er veittur mikilvægasta leikmanni Olísdeildar karla í minningu Valdimars Sveinbjörnssonar sem kom með handknattleiksíþróttina til Íslands.
Einar Jónsson þjálfari Íslands- og bikarmeistara Fram var kjörinn þjálfari ársins í Olísdeild karla.
Háttvísiverðlaun Handknattleiksdómararsambandsins féllu að þessu sinni í skaut Einars Baldvins Baldvinssonar markvarðar Aftureldingar sem einnig var valinn besti markvörður Olísdeildar.
Verðlaunahafar í Olísdeild karla:
Þjálfari ársins: Einar Jónsson, Fram.
Mikilvægasti leikmaðurinn (Valdimars bikarinn): Reynir Þór Stefánsson, Fram.
Besti leikmaðurinn: Reynir Þór Stefánsson, Fram.
Besti sóknarmaðurinn: Reynir Þór Stefánsson, Fram.
Besti varnarmaðurinn: Ágúst Birgison, FH.
Besti markmaðurinn: Einar Baldvin Baldvinsson, Aftureldingu.
Efnilegastur: Garðar Ingi Sindrason, FH.
Besta dómaraparið: Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson.
Háttvísiverðlaun HDSÍ: Einar Baldvin Baldvinsson.