- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Róbert verður áfram í Vestmannaeyjum

- Auglýsing -

Varnarmaðurinn öflugi, Róbert Sigurðarson, hefur framlengt samning sinn við ÍBV til loka keppnistímabilsins 2028.


Róbert, sem er Akureyringur að upplagi og lék m.a. með Akureyri handboltafélagi, var í sex ár með ÍBV, frá 2017 til 2023 og varð tvisvar Íslandsmeistari og jafn oft bikarmeistari á þeim tíma. Hann var leikmaður Drammen leiktíðina 2023/2024 en sneri til baka til ÍBV sumarið 2024 og hefur bundið vörn liðsins saman frá þeim tíma.

„Róbert hefur verið stór hluti af félaginu í gegnum árin. Með baráttuanda, vinnusemi og sterka tengingu við Eyjar heldur hann áfram að leggja sitt af mörkum fyrir liðið og framtíð félagsins,“ segir m.a. í tilkynningu ÍBV.

Unnusta Róberts, Andrea Jacobsen, ákvað að dögunum að flytja heim í sumar og ganga til liðs við ÍBV.

Hvalreki á fjörur ÍBV – Andrea semur til tveggja ára

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -