Sænski markvörðurinn Andreas Palicka gengur í vikunni til liðs við HSG Wetzlar, hvar Rúnar Sigtryggsson er þjálfari. Þýski miðillinn Sport Bild greinir frá því að Palicka hafi samþykkt að skrifa undir samning við Wetzlar út tímabilið og ganga svo til liðs við Füchse Berlín í sumar eins og áður hafði verið tilkynnt um.
Wetzlar hefur unnið að skiptunum að undanförnu en til þess að þau gætu gengið í gegn þurfti Palicka að fá samningi sínum við norska félagið Kolstad rift, svo honum væri unnt að skipta til Wetzlar áður en félagaskiptaglugganum verður lokað næstkomandi sunnudag.
Krækir Rúnar í Palicka fyrir lokasprettinn?
Sport Bild skýrir frá því að Kolstad og Palicka hafi komist að samkomulagi um riftun og að því geti sænski reynsluboltinn gengið formlega til liðs við Wetzlar á morgun.
Wetzlar er í harðri fallbaráttu í efstu deild Þýskalands, í 17. og næstneðsta sæti, og bindur Wetzlar með Rúnar í broddi fylkingar vonir við að Palicka geti lagt sitt af mörkum til þess að forða liðinu frá falli niður í B-deild.


