- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Rúnar Kárason lætur staðar numið

- Auglýsing -

Handknattleiksmaðurinn Rúnar Kárason tilkynnti í dag að hann hafi ákveðið að leggja keppnisskóna á hilluna góðu eftir 21 ár í meistaraflokki, þar af í 13 ár ytra í atvinnumennsku. Rúnar, sem verður 38 ára gamall í maí, lauk ferlinum undanfarin þrjú ár með uppeldisfélagi sínu, Fram. Hann varð Íslands- og bikarmeistari með liðinu 2025 og einnig 2006 á táningsaldri.


Að loknum 12 ára ferli sem atvinnumaður í Þýskalandi og Danmörku flutti Rúnar heim sumarið 2021 og gekk til liðs við ÍBV. Hann átti tvö frábær tímabil í Eyjum og varð Íslandsmeistari 2023. Sama ár var Rúnar m.a. valinn mikilvægasti leikmaður úrslitakeppninnar og í mótslok besti leikmaður deildarinnar.

„Ferillinn var alls konar, stórkostlegur og hörmung,“ skrifaði Rúnar í færslu á Instagram í dag.

Auk Fram og ÍBV lék Rúnar með Füchse Berlin (2009-2011), Bergischer HC (2011-2012), TV Großwallstadt (2012-2013), Rhein-Neckar Löwen (2013), TSV Hannover-Burgdorf (2013-2018) og Ribe-Esbjerg HH (2018-2021).

Rúnar lék í 100 landsleiki, þá síðustu í Noregi í ársbyrjun 2019. Hann varð markahæsti leikmaður landsliðsins á HM 2017 í Frakklandi.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -