- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Rúnari hefur verið sagt upp hjá Leipzig

Rúnar Sigtryggsson hefur verið sagt upp störfum hjá Leipzig. Ljómsynd/Leipzig
- Auglýsing -


Rúnari Sigtryggssyni hefur verið sagt upp störfum hjá þýska handknattleiksliðinu SC DHfK Leipzig. Rúnar hefur þjálfað liðið frá því í nóvember 2022. Samningur hans var framlengdur til 2027 á síðasta ári. Forráðamönnum félagsins þykir árangur á nýliðinni leiktíð vera undir væntingum og vilja gera breytingar.

Ekki hefur verið greint frá því hver tekur við en nafn Dananas Nicolej Krickau hefur verið nefnt.


Handbolti.is sagði frá því fyrir 11 dögum að þýskir fjölmiðar töldu Rúnar vera orðinn valtann í sessi á þjálfarastólnum.

Reif liðið strax upp

Rúnar, hætti skyndilega með Hauka, og tók við SC DHfK Leipzig í miklum vanda í nóvember 2022. Þá var liðið vart komið á blað og sat í fallsæti. Rúnar sneri þegar við blaðinu. Liðið vann sjö leiki í röð, sem er félagsmet, og þegar upp var staðið hafnaði Leipzig í 11. sæti vorið 2023. Tímabilið 2023/2024 varð Leipzig í áttunda sæti. Á ýmsu gekk í vetur. Talsvert var um meiðsli auk þess sem einn besti leikmaður liðsins, Viggó Kristjánsson, var seldur til HC Erlangen í lok síðasta árs. Margir leikir töpuðust naumlega og niðurstaðan varð 13. sæti af 18 liðum með 21 stig af 68 mögulegum. Það er lakasti árangur liðs félagsins í áratug.

Andri Már Rúnarsson, sonur Rúnar, gerði það gott með liðinu á nýliðnu keppnistímabili. Hann heldur áfram þrátt fyrir breytingar á högum föður hans.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -