Rut Arnfjörð Jónsdóttir, ein reyndasta landsliðkona Íslands í handknattleik og leikmaður Hauka, hefur ákveðið að gefa ekki oftar kost á sér í landsliðið. Rut Arnfjörð staðfestir ætlan sína við mbl.is í dag.
Rut Arnfjörð er á 35 aldursári. Hún á að baki 124 landsleiki og skoraði í þeim 249 mörk, þar af fjögur stórmót, EM2010, 2012 og 2024 auk HM2011. Rut Arnfjörð er sú síðasta af þeim sem voru í fyrsta kvennalandsliði Íslands sem tók þátt í stórmóti, EM 2010, sem ákveður að setja punkt aftan við landsliðsferilinn.
Síðustu landsleikir Rutar Arnfjörð voru gegn Ísrael í umspili HM í 10. apríl í Kaplakrika. Um leið ákvað Steinunn Björnsdóttir að láta gott heita með landsliðinu.
Rut Arnfjörð er fimmta leikjahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi á eftir Hrafnhildi Skúladóttur, 170, Örnu Sif Pálsdóttur, 150, Þóreyju Rósu Stefánsdóttur, 145, og Hönnu Guðrúnu Stefánsdóttur, 142, hafa leikið fleiri landsleiki. Þá er Rut í tíunda sæti yfir markahæstu landsliðskonur Íslands frá upphafi.