- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Sænsku meistararnir spara – engin Evrópukeppni

Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Sænska meistaraliðið Ystads IF ætlar ekki að taka þátt í Evrópukeppni félagsliða á næsta keppnistímabili. Ástæðan er fjárhagslegs eðlis en mikill kostnaður er við þátttökuna og tekjurnar ekki nægar til þess að standa undir útgjöldum eftir því sænskir fjölmiðlar hafa eftir forsvarsmanni félagsins.


Ystads IF hefur tekið þátt í Evrópudeildinni og í Evrópubikarkeppninni undanfarin fimm ár. Á nýliðnu tímabili var Ystads IF í Evrópudeildinni og varð m.a. að fara í gegnum forkeppni áður en kom að riðlakeppninni. Eftir það tók við 32-liða úrslitum riðlakeppninnar, eins og FH og Valur voru með. Ystads IF komst áfram í 16-liða úrslit sem einnig var leikin í riðlum. Alls voru leikirnir 14 í keppninni með forkeppninni hvar liðið sótti portúgölsku eyjuna Madeira heima. Sú ferð var afar kostnaðarsöm.

Nú er kominn tími til þess að taka líta á fjárhagslegu hliðina umfram þá íþróttalegu að sögn stjórnanda Ystads IF.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -