Dagur Gautason skoraði ekki mark fyrir Montpellier þegar liðið tapaði fyrir Nimes á útivelli í frönsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld, 30:28. Dagur tók þátt í leiknum í um 23 mínútur og átt tvö markskot.
Með tapinu eru vonir Montpellier um að ná öðru sæti frönsku 1. deildarinnar úr sögunni og um leið draumurinn um þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Liðið er þremur stigum á eftir Nantes sem er í öðru sæti. Montpellier á einn leik eftir en Nantes tvær viðureignir, aðra af þeim við Chambéry í kvöld.
Dagur kom til Montpellier í febrúar og rær á ný mið í sumar eins og handbolti.is sagði frá fyrir nokkru.
PSG er í efsta sæti þremur stigum fyrir ofan Nantes og tryggir sér franska meistaratitilinn í kvöld með sigri á Istres á heimavelli. PSG hefur orðið meistari í Frakklandi ár hvert undanfarin áratug.
Kom lítið við sögu
Grétar Ari Guðjónsson markvörður kom lítið við sögu þegar Ivry tapaði á heimavelli fyrir Saint-Raphaël, 38:33. Ivry er fallið í 2. deild eftir mjög erfitt keppnistímabil.
Staðan í frönsku 1. deildinni: