- Auglýsing -
Japanski landsliðsmarkvörðurinn í handknattleik karla, Motoki Sakai, er mættur til æfinga í Origohöllina á Hlíðarenda og er þess albúinn að leika með Íslandsmeistaraliði Vals. Félagið greinir frá þessu í dag og birtir mynd af Sakai á æfingu.
Sakai æfir einn um þessar mundir því væntanlegir samherjar hans eru í sóttkví a.m.k. þangað til á morgun.
Sakai er fæddur í nóvember árið 1995 og kemur frá Toyoda Gosei Blue Falcon í heimalandinu þar sem hann hafði leikið undanfarin þrjú ár.
Sakai, sem á 30 landsleiki að baki, var í japanska landsliðinu undir stjórn Valsarans Dags Sigurðssonar á Ólympíuleikunum sem fram fóru í Tókýó í lok júlí og í byrjun ágúst.
- Auglýsing -