Spænska stjarnan Alex Dujshebaev, sem gengur til liðs við VfL Gummersbach í sumar, segir samræður við Guðjón Val Sigurðsson þjálfara liðsins hafa átt lykilþátt í að hann hafi ákveðið að semja við félagið.
Dujshebaev gengur til liðs við Gummersbach frá Industria Kielce í Póllandi að yfirstandandi tímabili loknu og hefur skrifað undir þriggja ára samning.
Guðjón Valur hefur krækt í Dujshebaev
„Þýska deildin má fara að hlakka til þess að fá hann. Þetta eru stór félagaskipti fyrir okkur í VfL, stuðningsmenn okkar og svæðið. Við erum ótrúlega stoltir og ánægðir að hafa samið við leikmann sem býr yfir jafn miklum gæðum og Alex gerir.
Við höfum átt nokkur góð samtöl við hann. Við erum himinlifandi að hann trúi á framtíðarsýn okkar og er reiðubúinn að koma í þýsku deildina. Við reiknum með því að hann sjái til þess að spilamennska okkar verði enn hraðari og betri,“ sagði Guðjón Valur í samtali við heimasíðu VfL Gummersbach.
Samræðurnar við Gogga og Schindler
„Ég er ótrúlega stoltur að ganga til liðs við félag sem á sér þessa miklu sögu og að fá að spila í þýsku deildinni, bestu deild heims, þar sem ég verð hluti af metnaðarfullu verkefni.
Lykilatriði í ákvörðun minni voru samræðurnar sem ég átti við Gogga og Christoph Schindler. Ég er reiðubúinn að leggja allt mitt af mörkum fyrir þetta félag svo við getum náð markmiðum okkar og vaxið í sameiningu,“ sagði Dujshebaev við heimasíðu félagsins.
Schindler sem hann nefnir er framkvæmdastjóri VfL Gummersbach.



