Sara Sif Helgadóttir landsliðsmarkvörður hefur skrifað undir nýjan samning við bikarmeistara Hauka. Hún kom til félagsins fyrir tveimur árum frá Val en hafði áður m.a. leikið með Fram, HK og Fjölni. Sara Sif hefur leikið 21 landsleik og er í landsliðshópnum sem valinn var á dögunum og mætir Svartfellingum í tvígang í undankeppni EM í fyrstu viku mars.
„Ég er mjög spennt fyrir framhaldinu og hlakka til að halda áfram að berjast fyrir félagið. Við erum með frábæran hóp og markmiðin skýr,“ segir Sara Sif í tilkynningu Hauka í morgun.
„Að halda í leikmann eins og Söru Sif er gríðarlega mikilvægt fyrir liðið því hún er leiðtogi innan sem utan vallar,“ segir enn fremur í tilkynningu Hauka.
Haukar eru í 3. sæti Olísdeildar kvenna þegar þrjár umferðir eru eftir auk þess sem liðið mætir Fram í undanúrslitum bikarkeppninnar á miðvikudaginn.
Samkvæmt tölfræði HBStatz er Sara Sif með 34,4% hlutfallsmarkvörslu í leikjum tímabilsins í Olísdeildinni.



