Elín Klara Þorkelsdóttir átti frábært tímabil í sænsku úrvalsdeildinni, sínu fyrsta í atvinnumennsku, og er í úrvalsliði sænska miðilsins Handbollskanalen. Elín Klara skoraði 141 mark og gaf 34 stoðsendingar í 22 leikjum fyrir IK Sävehof, sem varð deildarmeistari.
Senn hefst svo átta liða úrslitakeppni um sænska meistaratitilinn. Í umfjöllun Handbollskanalen er ekki látið nægja að velja hana í úrvalsliðið í vinstri skyttu. Blaðamaðurinn Ola Selby hrósar nefnilega Elínu Klöru í hástert og segir hana vera bestu kaup ársins.
Elín Klara endaði næstmarkahæst í sænsku úrvalsdeildinni
„Bestu félagaskipti ársins, vinstri skytta ársins og leikmaður ársins í úrvalsdeildinni að mínu mati. Hún var nærri því óstöðvandi í nokkrum leikjum. Hún er hvirfilbylur sem er of góð fyrir úrvalsdeildina,“ skrifaði Selby um Elínu Klöru.
Hún gekk til liðs við Sävehof frá Haukum síðastliðið sumar og er lykilmaður hjá íslenska landsliðinu. Elín Klara er enn aðeins 21 árs gömul.



