Pólski línumaðurinn Kamil Syprzak og ein helsta stjarna landsliðsins yfirgaf pólska landsliðið í fyrrakvöld þótt það eigi enn eftir að leika einu sinni í forsetabikarnum á heimsmeistaramótinu í handknattleik. Pólska handknattleikssambandið segir í tilkynningu að Syprzak hafi yfirgefið liðið í óleyfi og hótar honum refsingu.
Syprzak segir aftur á móti í tilkynningu að vegna meiðsla hafi félagslið hans, PSG, óskað eftir því við pólska handknattleikssambandið að hann kæmi til Parísar til að fá greiningu og meðferð á meiðslum þeim sem hrjáð hafa línumanninn sterka frá þeim tíma að HM hófst. Ljóst þykir að málið mun draga dilk á eftir sér fyrir Syprzak þar sem forsvarsmenn pólska handknattleiksins eru æfir af reiði.
Pólverjar leika til úrslita um forsetabikarinn á HM á morgun í Poreč í Króatíu gegn Bandaríkjunum. Árangurinn á mótinu er Pólverjum mikil vonbrigði en lið þeirra var í afar erfiðum riðli á fyrsta stigi HM, með Sviss, Tékklandi og Þýskalandi.