- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Seinni leiknum hefur einnig verið slegið á frest

- Auglýsing -

Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur ákveðið að slá á frest viðureign Grikklands og Ísraels í undankeppni EM kvenna sem til stóð að háð yrði í Grikklandi á sunnudaginn. Á mánudaginn var leik þjóðanna sem átti að fara í Ísrael í kvöld frestað.


Eins og gefur að skilja er ástæða frestunarinnar stríðið sem geisar í Miðausturlöndum eftir að Bandaríkin og Ísrael réðust á Íran. Ekki er hægt að tryggja öryggi keppenda, hvorki á ferðalögum né á leikstað.

Með öllu er óvíst hvenær leikir Grikkja og Ísraels fara fram. Með þeim í riðli eru Austurríki og Spánn sem mætast í kvöld og á laugardaginn.


Undankeppni EM kvenna lýkur sunnudaginn 12. apríl.

Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja

EHF frestar leik Ísraels og Grikklands

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -