-Auglýsing-

Selfoss og Stjarnan jöfn að stigum fyrir lokaumferðina – þriðja sætið er Hauka

- Auglýsing -

Ekki skýrðust línurnar í fallbaráttu Olísdeildar kvenna í leikjum næstsíðustu umferðar sem fram fóru í kvöld. Stjarnan náði reyndar í stig gegn Fram, 34:34, og stendur jöfn liði Selfoss sem tapaði fyrir Haukum, 30:22, í Sethöllinni. Selfoss og Stjarnan eru þar með jöfn að stigum í tveimur neðstu sætunum fyrir síðustu leikina sem fram fara á laugardaginn. Selfoss sækir þá ÍR heim og Stjarnan bregður sér á Ásvelli og mætir Haukum.


Selfoss stendur betur að vígi í keppni sinni við Stjörnuna um næsta neðsta sætið þrátt fyrir að liðin standi jöfn að stigum. Selfoss liðið stendur betur að vígi í innbyrðis viðureignum liðanna.

Haukar eiga þriðja sæti Olísdeildar víst eftir sigurinn í Sethöllinni vegna þess að ÍR tapaði í Vestmannaeyjum, 33:25. Haukar eru þar með þremur stigum á undan ÍR og er þar með útilokað að ÍR-ingar vinni þriðja sætið af Hafnarfjarðarliðinu. Þar með er ljóst að Haukar mæta KA/Þór í fyrstu umferð úrslitakeppninnar og ÍR leikur við Fram.

Deildarmeistarar Vals unnu annan leikinn í röð afar naumlega. Að þessu sinni lagði Valur lið KA/Þór nyrðra, 31:30. Handknattleikskonan efnilega Arna Karitas Eiríksdóttir skoraði sigurmark Vals.

21. umferð, laugardaginn 21. mars:
N1-höllin: Valur – ÍBV, kl. 14.
Lambhagahöllin: Fram – KA/Þór, kl. 14.
Skógarsel: ÍR – Selfoss, kl. 14.
Kuehne+Nagel höllin: Haukar – Stjarnan, kl. 14.

Staðan í Olísdeildum.

Úrslit leikja 21. umferðar Olísdeildar kvenna

Stjarnan – Fram 34:34 (18:17).

Mörk Stjörnunnar: Natasja Hammer 7, Sara Katrín Gunnarsdóttir 6, Rakel Guðjónsdóttir 5, Eva Björk Davíðsdóttir 5/1, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 4, Inga Maria Roysdottir 4, Hanna Guðrún Hauksdóttir 2, Vigdís Arna Hjartardóttir 1.
Varin skot: Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 17/1, 34,7%.

Mörk Fram: Dagmar Guðrún Pálsdóttir 9, Harpa María Friðgeirsdóttir 8, Katrín Anna Ásmundsdóttir 4, Hulda Dagsdóttir 4/1, Ásdís Guðmundsdóttir 3, Sóldís Rós Ragnarsdóttir 3, Valgerður Arnalds 3.
Varin skot: Ethel Gyða Bjarnasen 6/1, 28,6% – Arna Sif Jónsdóttir 4, 17,4%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

Selfoss – Haukar 22:30 (18:17).

Mörk Selfoss: Hulda Dís Þrastardóttir 6/4, Marte Syverud 4/2, Adela Eyrún Jóhannsdóttir 4, Eva Lind Tyrfingsdóttir 3, Hulda Hrönn Bragadóttir 2, Arna Kristín Einarsdóttir 1, Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir 1, Mia Kristin Syverud 1.
Varin skot: Sara Xiao Reykdal 9, 24,3%.

Mörk Hauka: Rakel Oddný Guðmundsdóttir 8, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 6/2, Inga Dís Jóhannsdóttir 5, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 4, Sara Marie Odden 3, Alexandra Líf Arnarsdóttir 1, Aníta Eik Jónsdóttir 1, Embla Steindórsdóttir 1, Thelma Melsted Björgvinsdóttir 1.
Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 10/1, 33,3%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

ÍBV – ÍR 33:25 (15:10).

Mörk ÍBV: Birna Dís Sigurðardóttir 8, Sandra Erlingsdóttir 6/3, Ásdís Halla Hjarðar 3, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 3, Ásta Björt Júlíusdóttir 3/1, Agnes Lilja Styrmisdóttir 2, Birna Berg Haraldsdóttir 2, Birna María Unnarsdóttir 2, Amelía Dís Einarsdóttir 1, Birna Dögg Egilsdóttir 1, Klara Káradóttir 1, Lilja Kristín Svansdóttir 1.
Varin skot: Amalia Frøland 12, 41,4% – Ólöf Maren Bjarnadóttir 1/1, 14,3%.

Mörk ÍR: Sara Dögg Hjaltadóttir 13/8, Dagbjört Ýr Ólafsdóttir 4, Karen Tinna Demian 3, Sylvía Sigríður Jónsdóttir 2, María Leifsdóttir 2, Anna María Aðalsteinsdóttir 1.
Varin skot: Ingunn María Brynjarsdóttir 4, 16,7% – Sif Hallgrímsdóttir 0.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

KA/Þór – Valur 30:31 (14:13).

Mörk KA/Þórs: Susanne Denise Pettersen 7, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 6, Lydía Gunnþórsdóttir 4, Trude Blestrud Hakonsen 4, Tinna Valgerður Gísladóttir 3, Elsa Björg Guðmundsdóttir 2, Hafrún Linda Guðmundsdóttir 2, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 1, Herdís Eiríksdóttir 1.
Varin skot: Bernadett Leiner 7/1, 21,9% – Ástrós Anna Bender 3, 33,3%.

Mörk Vals: Auður Ester Gestsdóttir 8, Lovísa Thompson 6, Arna Karitas Eiríksdóttir 5, Elísa Elíasdóttir 5, Guðrún Hekla Traustadóttir 3, Lilja Ágústsdóttir 3, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 1.
Varin skot: Elísabet Millý Elíasardóttir 10/1, 25%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

Staðan í Olísdeildum.

SætiFélagLeikirSJTStig
1Valur20180236
2ÍBV20160432
3Haukar20121725
4ÍR20110922
5Fram20821018
6KA/Þór20711215
7Selfoss2030176
8Stjarnan2022166
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -