Henrik Signell hefur sagt upp samningi sínum sem þjálfari norska úrvalsdeildarliðsins Larvik. Þar með er ljóst að nýr þjálfari verður við stjórnvölinn hjá liðinu í sumar þegar Dana Björg Guðmundsdóttir landsliðskona gengur til liðs við Larvik.
Signell tók við þjálfun Larvik á síðasta ári en samhliða er hann einnig landsliðsþjálfari Hollands. Signell segir mikla fjarveru frá fjölskyldu vera ástæðu þess að hann hafi tekið ákvörðun um að segja upp samningi sínum í Larvik. Fjölskyldan býr í Gautaborg og hefur hann þar af leiðandi verið í fjarbúð sem ekki gangi til lengdar. Fjölskyldan mun ekki hafa áhuga á að flytja til Noregs.
Larvik er í þriðja sæti norsku úrvalsdeildarinnar þegar sjö umferðir eru eftir auk úrslitakeppni. Liðið heltist úr lestinni að lokinni riðlakeppni 16-liða Evrópudeildarinnar fyrir viku.


