- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Signý Pála gengur til liðs við Fjölni – Bergur og Óli semja til tveggja ára

Signý Pála Pálsdóttir markvörður. Mynd/Fjölnir
- Auglýsing -



Signý Pála Pálsdóttir markvörður hefur ákveðið að ganga til liðs við Fjölni sem leikur í Grill 66-deild kvenna. Signý Pála hefur undanfarin ár leikið með Víkingi í sömu deild. Frá Víkingi kom hún frá Val.


Annar markvörður, Bergur Bjartmarsson, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Fjölnisliðið sem féll úr Olísdeildinni á dögunum. Bergur hefur leikið með Fjölni um árabil en í yngri flokkum var hann hjá Fram.

Óli Fannar Pedersen heldur einnig óhikað áfram með Fjölnisliðinu. Hann hefur, líkt og Bergur, skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Fjölni.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -