- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Sigurður í bandaríska landsliðshópnum

- Auglýsing -

Sigurður Jefferson Guarino, línumaður HK, er í 18 manna landsliðshópi Bandaríkjanna sem mun taka þátt í æfingamóti, NORLYS Golden League, í Kaupmannahöfn frá 19. – 22. mars.

Sigurður lék sína fyrstu landsleiki fyrir Bandaríkin á þróunarmóti Alþjóðahandknattleikssambandsins, IHF, í Búlgaríu í mars á síðasta ári og var einnig hluti af 20 manna hópi sem kom saman til æfinga í Sønderbörg í Danmörku í janúar á þessu ári.

HK-ingur í bandaríska landsliðinu sem æfir í Danmörku


Í Golden League munu Sigurður og félagar í bandaríska landsliðinu fá erfið verkefni þar sem andstæðingarnir verða heimamenn í Danmörku, Noregur og Holland.

Aukið púður í bandarískan handknattleik

Bandaríkin hafa á undanförnum árum sett aukið púður í að hefja handknattleik til vegs og virðingar þar í landi. Karlalandsliðið hefur tekið þátt á síðustu tveimur heimsmeistaramótum og fer að óbreyttu á það næsta, HM 2027 í Þýskalandi, í boði IHF en þá með því skilyrði að liðið nái ákveðið góðum árangri fyrir mótið.

Þá taka Bandaríkin þátt á Ólympíuleikunum í Los Angeles 2028 sem gestgjafar. Bandaríska leikmannahópinn fyrir Golden League má sjá hér:

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -