- Auglýsing -

Sigurganga Dana heldur áfram á handknattleiksvellinum

- Auglýsing -


Sigurganga Dana á handknattleiksvellinum heldur áfram og svo virðist vera sem möguleikar séu allgóðir fyrir að svo verði áfram um nokkurt skeið. Alltént virðist efniviður vera fyrir hendi þegar heimsmeistaramót 21 árs landsliða er gert upp eftir 11 daga keppni. Danska landsliðið varð heimsmeistari 21 árs landsliða í dag eftir þriggja marka sigur á Portúgal, 29:26, í úrslitaleik í Katowice í Póllandi.

Þar með fylgir 21 árs landsliðið eftir fjórum heimsmeistaratitlum í röð hjá A-landsliðinu. Danska liðið vann allar átta viðureignir sínar á mótinu, flestar sannfærandi.


Þetta er fjórði heimsmeistaratitill Dana í 21 árs aldursflokki karla. Tuttugu ár eru liðin síðan Danir unnu titilinn síðast í þessum aldursflokki.

Í úrslitaleiknum virtist danska liðið ætla að rúlla yfir það portúgalska. Yfirburðir voru miklir í fyrri hálfleik og fjögurra marka forskot í hálfleik, síst of lítið. Portúgalska liðið sótti í sig veðrið í síðari hálfleik og tókst að minnka muninn í eitt mark. Skömmu fyrir leikslok var munurinn eitt mark en tvö opin færi auk vítakasts fóru í vaskinn hjá portúgalska liðinu og um leið draumurinn að jafna metin. Margir Portúgalar voru vonsviknir yfir dómgæslunni.

Eins og fram kom í dag skrifuðu Færeyingar handboltasöguna með því að vinna bronsverðlaun í fyrsta skipti í sögunni. Færeyingar lögðu Svía, 27:26.

Óli markahæstur og bestur

Færeyingurinn Óli Mittún var valinn mikilvægasti leikmaður mótsins. Hann varð einnig markahæstur.

Óli Mittún, markahæsti og besti leikmaður HM 21 árs landsliða. Ljósmynd/IHF

Úrvalslið HM 21 árs:
Markvörður: Diogo Rema Marques (Portúgal).
Hægra horn: Magnus Storgaard Pedersen (Danmörk).
Hægri skytta: Nikolaj Larsson (Danmörk).
Miðjumaður: Axel Månsson (Svíþjóð).
Vinstri skytta: Joao Lourenco (Portúgal).
Vinstra horn: Noah Martinsson (Svíþjóð).
Línumaður: Moaz Azab (Egyptaland).

Markakóngur: Óli Mittún, Færeyjum, 73 mörk.
Mikilvægasti leikmaður mótsins: Óli Mittún.

Röð liðanna á mótinu:

1.Danmörk17.Serbía
2.Portúgal18.Ísland
3.Færeyjar19.Pólland
4.Svíþjóð20.Alsír
5.Þýskaland21.Túnis
6.Egyptaland22.Marokkó
7.Slóvenía23.Argentína
8.Noregur24.Suður Kórea
9.Spánn25.N-Makedónía
10.Frakkland26.Bandaríkin
11.Austurríki27.Brasilía
12.Króatía28.Barein
13.Sviss29.Sádi Arabía
14.Ungv.land30.Úrúgvæ
15.Rúmenía31.Mexíkó
16.Japan32.Kanada
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -